Kvika banki gefur ekki upp hvenær hann geri ráð fyrir að svar við beiðnum Arion banka og Íslandsbanka um samrunaviðræður liggi fyrir. Meira en tvær vikur eru liðnar síðan að Arion og Íslandsbanki óskuðu eftir samrunaviðræðum.

„Engar frekari upplýsingar liggja fyrir frá Kviku banka að svo stöddu, aðrar en þær sem þegar hafa verið birtar í Kauphöll,“ segir í svari Kviku við fyrirspurn Viðskiptablaðsins.

„Bankinn mun veita uppfærðar upplýsingar um framvindu málsins um leið og tilefni þykir til, í samræmi við lögbundna upplýsingaskyldu sína.“

Arion banki tilkynnti eftir lokun markaða þriðjudaginn 27. maí um að hann hefði óskað eftir samrunaviðræðum við Kviku. Íslandsbanki, sem birti samskonar tilkynningu morguninn eftir, óskaði eftir svari við bréfi sínu innan tveggja vikna en sagðist reiðubúinn til að lengja þann frest, ef Kvika óskar þess.

Íslandsbanki sagðist jafnframt reiðubúinn að bjóða 10% ofan á markaðsvirði Kviku við útreikning á skiptihlutföllum.

Kvika banki sagði í tilkynningu eftir lokun markaða á þriðjudaginn síðasta, 10. júní, að ekki liggi fyrir nein ákvörðun af hálfu stjórnar bankans um framvindu í málinu.

Í umræddri tilkynningu upplýsti Kvika um að Moody‘s hefði formlega tekið til skoðunar að hækka lánshæfismat bankans í kjölfar ofangreindra beiðna Arion og Íslandsbanka um samrunaviðræður.