Hlutabréfaverð Kviku banka hefur fallið um meira en tvö prósent í fyrstu viðskiptum eftir opnun Kauphallarinnar í morgun og stendur nú í 17,1 krónu á hlut, samanborið við 17,55 í lok síðustu viku.

Gengi Íslandsbanka hefur einnig lækkað um 1,3% og stendur nú í 117,5 krónum á hlut. Hlutabréfaverð Arion banka hefur fallið um 0,9% og nemur nú 165 krónum á hlut þegar fréttin er skrifuð.

Kvika banki tilkynnti eftir lokun Kauphallarinnar á föstudaginn að stjórn bankans telji ekki forsendur til að hefja samrunaviðræður á grundvelli erinda stjórna Arion og Íslandsbanka frá því í lok maí. Þar hafði Íslandsbanki lýst því yfir að hann væri reiðubúinn að bjóða 10% ofan á markaðsvirði Kviku við útreikning á skiptihlutföllum.

Stjórn Kviku sagðist þó reiðubúin að endurmeta ákvörðun sína, séu aðilar tilbúnir að endurskoða þær forsendur um virði Kviku sem fram komu í framangreindum erindum.

Íslandsbanki sagði í tilkynningu á föstudaginn að hann hyggist taka afstöðu stjórnar Kviku til nánari skoðunar, m.a. í samhengi við önnur tækifæri bankans á markaðnum.