Úrvalsvísitalan lækkaði um hálft prósent í 1,6 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Yfir helmingur veltunnar var með hlutabréf Íslandsbanka en gengi bankans stóð í stað í 119,5 krónum á hlut.
Næst mesta veltan var með hlutabréf Kviku banka sem lækkuðu um 1,7% í 290 milljónakróna viðskiptum og stendur gengi Kviku nú í 17,6 krónum á hlut.
Gera má ráð fyrir að Kvika tilkynni bráðlega um svar sitt við beiðnum Arion banka og Íslandsbanka um samrunaviðræðum. Arion banki tilkynnti eftir lokun markaða þriðjudaginn 27. maí um að hann hefði óskað eftir samrunaviðræðum við Kviku. Íslandsbanki, sem birti samskonar tilkynningu morguninn eftir, óskaði eftir svari við bréfinu innan tveggja vikna.
Alvotech lækkaði mest af félögum aðalmarkaðarins eða um 3,7% í 32 milljóna veltu. Gengi Alvotech stendur nú í 1.310 krónum á hlut en til samanburðar var útgáfuverð í nýlegri 10 milljarða króna hlutafjáraukningu félagsins 1.320 krónur.
Hlutabréfaverð Síldarvinnslunnar lækkaði einnig um 3,6% í 30 milljóna veltu og stendur nú í 80 krónum á hlut. Þá féll gengi Ísfélagsins um 2,3 í lítilli veltu.
Einu félögin sem hækkuðu um eitt prósent eða meira eru Síminn og JBT Marel en lítil velta var með hlutabréf félaganna tveggja.