Árið 1994 var ár kvikmyndanna, sem endurspeglast meðal annars í því að 5 af 40 bestu kvikmyndum allra tíma samkvæmt Internet Movie Database, sem byggir á einkunnagjöf áhorfenda, komu út það ár.

Stærsta mynd ársins var án efa Forrest Gump þar sem Tom Hanks fór með stórleik sem hinn einfaldi en stórmerkilegi Forrest. Myndin var tilnefnd til þrettán Óskarsverðlauna ári seinna og vann sex, þar á meðal fyrir bestu kvikmyndina og besta leikarann í aðalhlutverki. Í Norður-Ameríku var Forrest Gump tekjuhæsta mynd ársins og næst tekjuhæsta myndin á heimsvísu.

Klassíska Disney teiknimyndin Lion King var aftur á móti tekjuhæst á heimsvísu og vann tvenn Óskarsverðlaun, þar á meðal fyrir besta lagið. Alls voru þrjú lög úr myndinni tilnefnd en þau voru öll sungin af stórstjörnunni Elton John.

Hin ofbeldisfulla Pulp Fiction var aðeins tíunda tekjuhæsta myndin árið 1994 en er hvað þekktasta myndin það ár. Enginn skortur var á stórleikurum í myndinni, John Travolta, Uma Thurman, Samuel L. Jackson og Bruce Willis fóru með helstu hlutverk. Myndin var tilnefnd til sjö Óskarsverðlauna árið eftir en laut í lægra haldi fyrir Forrest Gump í flestum flokkum. Quentin Tarantino og Roger Avary tóku heim einu styttu myndarinnar fyrir besta handritið byggt á áður útgefnu efni.

Síðast – en alls ekki síst – ber að nefna myndina sem margir telja bestu kvikmynd allra tíma: The Shawshank Redemption.

Shawshank Redemption.
Shawshank Redemption.

Frank Darabont leikstýrði myndinni sem byggð er á skáldsögu Stephens King en Tim Robbins og Morgan Freeman fara með aðalhlutverk í myndinni sem fangarnir Andy og Red.

Myndin sló ekki í gegn fyrst um sinn en var síðar tilnefnd til sjö Óskarsverðlauna árið 1995 og naut í kjölfarið meiri vinsælda. The Shawshank Redemption ratar iðulega á lista yfir bestu myndir allra tíma, bæði meðal áhorfenda og gagnrýnenda, og í dag trónir hún á toppi lista IMDb með 9,3 af 10 í einkunn.

Nánar er fjallað um málið í nýútkomnu 30 ára afmælistímariti Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér.