Kynnisferðir er komið í eigendahóp Reykjabaðanna og hefur félagið nú eignast þriðjungshlut á móti núverandi eigendum.

Reykjaböðin verða byggð upp á Árhólmasvæðinu í Hveragerði við minni Reykjadalsins. Reykjadalsskálinn var fyrsti áfanginn en nú er tekið næsta stóra skrefið með byggingu náttúrubaða í viðamikilli heildaruppbyggingu á svæðinu en Reykjadalsfélagið og Hveragerðisbær kláruðu fyrr á árinu nýtt deiliskipulag.

Aðsend teikning.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Á svæðinu er gert ráð fyrir fjölbreyttri þjónustu þar sem The Greenhouse Hotel mun starfrækja gistingu á svæðinu en einnig verður byggð upp frekari veitingastarfsemi og aðstaða fyrir mismunandi viðburðarhald.

„Árhólmar henta einstaklega vel fyrir baðstarfsemi en mikill jarðhiti er á svæðinu ásamt góðu aðgengi að heitu vatni. Þegar leggja hundruð þúsunda ferðamanna leið sína í Reykjadalinn til að stunda útivist, ganga dalinn og upplifa heita lækinn,“ segir í fréttatilkynningu.

Jarðframkvæmdir á svæðinu hófust fyrr á árinu og er vegakerfið langt komið. Einnig er verið að leggja lokahönd á grunn lónsins en nú stendur einmitt yfir val á verktökum sem koma til með að sjá um framkvæmdir lónsins og tengdra mannvirkja.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Reykjaböðin fullfjármögnuð með samstarfi við Arion

Uppbyggingarverkefnið við Reykjaböðin á svæði Árhólma í Hveragerði hefur að fullu verið fjármagnað með eigið fé eigenda og lánsfjármögnun frá Arion banka.

„Mjög gott samstarf hefur verið á milli eigendahópsins og bankans frá upphafi en bankinn sá einnig um lánsfjármögnun Gróðurhússins í Hveragerði sem og Reykjadaldsskálans sem er þjónustmiðstöð og kaffihús sem opnaði árið 2021 við rætur Reykjadalsins.

Nú er stigið nýtt skref í frekari uppbyggingu á þessum fallega stað með nýju náttúrulóni sem mun auka enn frekar á afþreyingu og þjónustu við heimamenn og gesti svæðisins.“

© Aðsend mynd (AÐSEND)
© Aðsend mynd (AÐSEND)