Forsætisráðuneytið, mennta- og barnamálaráðuneytið og Reykjavíkurborg kynntu í morgun áform um nýja þjóðarhöll sem nýta á fyrir nokkrar íþróttagreinar, tónleika og aðra viðburði. Áætlaður heildarkostnaður framkvæmdar er um 15 milljarðar króna.

Þjóðarhöllin verður 19 þúsund fermetrar að stærð, mun taka 8.600 manns í sæti og allt að 12.000 manns á tónleikum. Staðsetning hennar verður sunnan Laugardalshallar upp að Suðurlandsbraut.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í byrjun árs 2024 með verklokum haustið 2025, að því er kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Vinna að deiliskipulagi stendur enn yfir og samhliða er unnið að undirbúningi útboðs á hönnun og framkvæmd annars vegar og eftirliti hins vegar.

Staðsetning Þjóðarhallar samkvæmt skýrslu framkvæmdanefndar.

Í skýrslu framkvæmdanefndar um Þjóðarhöll kemur fram að í höllinni verði fjölnota gólf og sæti verði að hluta til hreyfanleg þannig að unnt sé að nýta megnið af gólfi Þjóðarhallar frá degi til dags til íþróttaæfinga en höllin rúmi sömuleiðis stóra íþróttaviðburði, landsliðsleiki og tónleika.

Þá mun Þjóðarhöllin uppfylla kröfur alþjóðlegra íþróttasambanda þannig að hægt verði að spila leiki á stórmótum hér á landi.

„Notendur verða íþróttafélög, landsliðshópar sérsambanda fyrir æfingar og keppni, skólar í nágrenninu, háskólar fyrir íþróttakennslu og ýmsir viðburðahaldarar. Þá er ætlunin að höllin sé aðgengileg almenningi til eflingar lýðheilsu með ýmsum æfingamöguleikum, auk veitingareksturs.“