Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur að hluta fallist á rök Samskipa í kæru fyrirtækisins vegna ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins frá 31. ágúst 2023 um meint ólöglegt samráð Eimskips og Samskipa á árunum 2008-2013.

Sektarákvörðun Samkeppniseftirlitsins upp á 4,2 milljarða króna hefur þannig verið lækkuð í 2,4 milljarða króna og ályktunum eftirlitsins hafnað að hluta.

Hin 2,4 milljarða sekt skiptist annars vegar í 2,3 milljarða sekt fyrir alvarleg og umfangsmikil brot gegn 10. gr. samkeppnislaga og 1. mgr. 53. gr. EES-samningsins. Hins vegar er Samskipum gert að greiða 100 milljón sekt fyrir að hafa brotið gegn upplýsingaskyldu fyrirtækisins samkvæmt 19. gr. laganna.

Í tilkynningu á vef Samkeppniseftirlitsins (SKE) segir að með úrskurði áfrýjunarnefndarinnar sé staðfest að Samskip hafi haft ólögmætt samráð við Eimskip á árunum 2008 til 2013.

Samskip senda frá sér yfirlýsingu

Samskip hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fyrirtækið segist frá upphafi hafa hafnað alfarið öllum ásökunum um hvers kyns samráð við Eimskip og með gögnum og rökum svarað ályktunum Samkeppniseftirlitsins „sem settar hafa verið fram án tengsla við gögn málsins og raunveruleg atvik í rekstri skipafélaganna“.

„Ljóst er að Samskip hafa orðið fyrir miklum kostnaði af málsmeðferð Samkeppniseftirlitsins, sem staðið hefur yfir frá árinu 2010. Þá er ljóst að málið í heild sinni og framferði Samkeppniseftirlitsins á öllum stigum málsins hefur skaðað ímynd og orðspor félagsins.

Samskip hafa hins vegar talið mikilvægt að gera allt sem í valdi félagsins stendur til að leiða sannleikann í ljós, þrátt fyrir að slík vegferð sé hvort tveggja í senn tímafrek og kostnaðarsöm. Samskip og Samkeppniseftirlitið hafa nú sex mánuði til að ákveða hvort úrskurður áfrýjunarnefndar verði borinn undir dómstóla.“

Samskip segjast ætla halda áfram málarekstri á hendur Eimskipi vegna „þeirra röngu og tilhæfulausu saka“ sem Eimskip bar Samskip í sátt sem gerð var við Samkeppniseftirlitið í júní 2021.

„Yfirlýsingar Eimskips hafa valdið Samskipum tjóni sem enn sér ekki fyrir endann á. Eimskipi verður gert að svara fyrir þær gerðir fyrir dómi.“

Samskip munu næstu daga og vikur yfirfara nánar forsendur úrskurðar áfrýjunarnefndarinnar og taka í framhaldinu ákvörðun um hvort málinu verði vísað til dómstóla. Félagið kemur ekki til með að tjá sig frekar um málið fyrr en að þeirri yfirferð lokinni.

SKE hefur einnig birt tilkynningu á vef sínum þar sem eftirlitið fer yfir sín sjónarmið og bendir á ákveðna þætti í úrskurði áfrýjunarnefnd samkeppnismála. Nálgast má tilkynningu SKE hér.