Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur úr 9,25% í 9,0%. Vextir bankans höfðu verið óbreyttir í 9,25% frá því í ágúst 2023.

Peningstefnunefnd vísar í hjöðnun verðbólgunnar síðustu mánuði. Verðbólga mældist 5,4% í september, samanborið við 6,0% í ágúst.

„Þótt ákveðnir einskiptisliðir vegi þungt hefur dregið úr umfangi og tíðni verðhækkana. Undirliggjandi verðbólga hefur jafnframt minnkað og verðbólguálag á skuldabréfamarkaði lækkað,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

Nefndin segir að áfram virðist hægja á efnahagsumsvifum í takt við aukið peningalegt taumhald. Þá séu vísbendingar um að dregið hafi úr spennu á vinnumarkaði ásamt því að svartsýni heimila og fyrirtækja hafi aukist.

„Þrálát verðbólga, verðbólguvæntingar yfir markmiði og mikil innlend eftirspurn kalla þó á varkárni. Áfram þarf því að viðhalda hæfilegu aðhaldsstigi til þess að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma.

Mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“