Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur, niður í 7,50%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Í yfirlýsingu nefndarinnar er bent á að verðbólga hafi verið 4,2% í apríl og minnkað töluvert frá því sem hún var mest fyrir tveimur árum. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans muni hún haldast nálægt 4% út árið en taka síðan að hjaðna í markmið.

„Óvissa um verðbólguhorfur er þó áfram mikil, ekki síst vegna nýlegra vendinga í alþjóðlegum efnahagsmálum.”

Vilja ekki slaka á raunvaxtaaðhaldinu

Þá hafi hægst á vexti innlendrar eftirspurnar í takt við þétt taumhald peningastefnunnar. Spennan í þjóðarbúinu hafi því minnkað jafnt og þétt eins og sjá má á hægari umsvifum á húsnæðis- og vinnumarkaði.

„Enn virðist þó vera nokkur þróttur í efnahagsumsvifum sem endurspeglast m.a. í nýbirtum kortaveltutölum. Þá mælist töluverð hækkun launakostnaðar og þótt verðbólguvæntingar hafi lækkað eru þær áfram yfir markmiði.

Þótt verðbólga hafi hjaðnað og verðbólguvæntingar lækkað síðustu misseri er verðbólguþrýstingur enn til staðar. Þær aðstæður hafa því ekki skapast að hægt sé að slaka á núverandi raunvaxtaaðhaldi peningastefnunnar. Ljóst er að frekari skref til lækkunar vaxta eru háð því að verðbólga færist nær 2½% markmiði bankans.”