Landsbankinn hagnaðist um 37,5 milljarða króna eftir skatta árið 2024, samanborið við 33,2 milljarða hagnað árið áður. Arðsemi eiginfjár bankans árið 2024 var 12,1%, samanborið við 11,6% árið áður.

Bankaráð Landsbankans hyggst leggja til við aðalfund að greiða tæplega 19 milljarða króna í arð vegna ársins 2024, eða sem nemur um 50% af hagnaði ársins, að því er segir í uppgjörstilkynningu bankans.

Lilja: Aðkoma bankans að Marel og Eyri afar farsæl

Rekstrartekjur Landsbankans jukust um 8% og námu 79,7 milljörðum króna. Aukning skýrist að langmestu leyti af liðnum hreinn hagnaður af fjáreignum og fjárskuldum á gangvirði sem nam 12,7 milljörðum króna, samanborið við 6,7 milljarða árið áður.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir í tilkynningunni að meðal helstu tíðinda í íslensku viðskiptalífi á liðnu ári hafi verið yfirtaka JBT á Marel. Landsbankinn hafi lengi, í gegnum Eyri Invest, átt óbeinan eignarhlut í Marel sem rekja má til endurfjármögnunar Eyris Invest árið 2009.

Landsbankinn átti 14,2% hlut í Eyri, sem var stærsti hluthafi Marels með tæplega fjórðungshlut. Bankinn átti því um 3,5% óbeinan hlut í Marel.

„Virði eignarhlutarins í Eyri hefur sveiflast mikið á undanförnum árum og stundum haft töluverð áhrif á uppgjör bankans, en á heildina litið hefur aðkoma bankans að Marel og Eyri verið afar farsæl,“ segir Lilja

Allar forsendur fyrir frekari styrkingu lánshæfismatsins

Lilja segir að fjármögnun á erlendum og innlendum verðbréfamörkuðum hafi gengið vel. Hún nefnir sérstaklega útgáfu á víkjandi forgangsbréfum, sem var fyrsta slíka útgáfu hjá íslenskum banka.

„Vel heppnaðar skuldabréfaútgáfur staðfesta sterka stöðu bankans sem endurspeglaðist einnig í hækkun á lánshæfismati. Við teljum allar forsendur vera fyrir frekari styrkingu lánshæfismatsins á næstu misserum.“

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings hækkaði lánshæfismat Landsbankans í apríl 2024 um eitt þrep, upp í BBB+ með stöðugum horfum. Í nóvember sl. breytti S&P horfum lánshæfismatsins úr stöðugum í jákvæðar.