Landsframleiðsla á mann á Íslandi mældist 32% hærri en meðaltal Evrópusambandsins árið 2024, samkvæmt nýjum tölum sem Hagstofa Íslands birti í dag.
Þá var einstaklingsbundin neysla á mann 16% umfram meðaltal ESB. Ísland var í fimmta sæti þeirra 36 landa sem borin voru saman.
Verðlag á mat og drykk á Íslandi mældist 44% hærra en að meðaltali í sambandinu.