Landsnet endurgreiðir sex raforkuframleiðendum samtals um þrjá milljarða króna í dag vegna svokallaðs innmötunargjalds, þar af renna 2,4 milljarðar til Landsvirkjunar.

Gjaldið var hluti af flutningsgjöldum Landsnets og var lagt á í byrjun árs 2022. Það var innheimt í 18 mánuði, fram til september 2023 en Hæstiréttur Íslands úrskurðaði gjaldtökuna ólögmæta 5. júní sl. og staðfesti þar með niðurstöðu fyrri dómstiga.

„Landsvirkjun endurgreiðir viðskiptavinum sínum í dag þá upphæð sem rukkuð var á tímabilinu sem innmötunargjaldið var innheimt. Viðskiptavinum okkar hefur verið tilkynnt um endurgreiðsluna og jafnframt að hér sé einungis um að ræða höfuðstól, því enn er verið að semja um vaxtagreiðslur.“

Í tilkynningu segir að Landsvirkjun hafi mótmælt gjaldtöku Landsnets frá upphafi og taldi að ekki væru lagalegar forsendur fyrir henni. Í samningum við stórnotendur er almennt kveðið á um að raforkukaupandi beri ábyrgð á greiðslu flutningsgjalda.