Öryggismiðstöð Íslands hagnaðist um 418 milljónir króna í fyrra, samanborið við 562 milljóna hagnað árið 2023. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 10,5 milljörðum króna og jukust um 13 milli ára. Rekstrarkostnaður nam 9,5 milljörðum króna og munaði þar mest um laun og launatengd gjöld, sem námu 7,1 milljarði. Afskriftir námu 300 milljónum.
Dótturfélög Öryggismiðstöðvarinnar eru 115 Security ehf., HEB ehf. og Green Parking ehf. en ársverk samstæðunnar voru 557 árið 2024 og fjölgaði um 34 milli ára
Fram kemur í skýrslu stjórnar að á árinu 2024 lauk máli 115 Security ehf., við íslenska ríkið vegna endurákvörðunar opinberra gjalda vegna tekjuáranna 2011-2014. Félagið stefndi íslenska ríkinu vegna málsins en héraðsdómur dæmdi yfirskattanefnd og ríkisskattstjóra í vil árið 2023 og í fyrra staðfesti Landsréttur ákvörðun ríkisskattstjóra.
Fjárhæð endurákvörðunarinnar nam 128 milljónum króna að viðbættum dráttarvöxtum en áhrif endurákvörðunarinnar á afkomu samstæðunnar námu 375 milljónum.
Nánar má lesa um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast fréttina í heild hér.