Landsvirkjun hefur ákveðið að hætta endurkaupum á raforku af Elkem í ljósi bætts vatnsbúskapar. Landsvirkjun ákvað í desember að virkja endurkaupaákvæði í samningum Elkem og var þá reiknað með að endurkaup stæðu fram í byrjun febrúar hið minnsta.
„Það var síðasta vatnssparandi úrræði sem Landsvirkjun hafði yfir að ráða og jafnframt það kostnaðarsamasta. Það er því ánægjulegt að geta nú hætt þeim kaupum,“ segir í tilkynningu Landsvirkjunar.
Fyrirtækið segir að þrír blotakaflar í vetur og þær vatnssparandi aðgerðir sem gripið var til hafi bætt vatnsbúskapinn. Nú sé svo komið að staða Þórisvatns er ívið betri en á sama tíma í fyrra, en vatnsárið byrjaði í sögulegu lágmarki.
„Staðan er enn vel undir meðallagi, en hefur þó skánað það mikið að ekki telst ástæða til að halda áfram endurkaupum af járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga, eins og heimild er til í samningi fyrirtækisins við Landsvirkjun.“
Landsvirkjun hóf skerðingar til stórnotenda á suðvesturhluta landsins hinn 24. október sl. Þær verða óbreyttar áfram „enda vatnsbúskapur syðra enn með þeim hætti að skerðinga er þörf“.
Ójafnvægi í miðlunarstöðu m.a. vegna takmarkana í flutningskerfinu
Landsvirkjun segir stöðu bæði Blöndulóns og Hálslóns með ágætum, þau séu bæði yfir meðallagi og ekki þörf á skerðingum á Norður- og Austurlandi að svo stöddu. Miðlunarstaða sé því betri á Norður- og Austurlandi en syðra, líkt og undanfarin ár.
„Þetta ójafnvægi í miðlunarstöðu á milli landshluta verður til vegna mismunandi veðurfars en einnig vegna takmarkana í flutningskerfi Landsnets. Landsvirkjun getur ekki flutt eins mikla orku að norðaustan og fyrirtækið vildi til að styðja við raforkuafhendingu sunnanlands og ná jafnvægi í miðlunarstöðu á milli landshluta.“