Landsvirkjun hefur gengið frá sölu á fyrrum höfuðstöðvum fyrirtækisins að Háaleitisbraut 68 í Reykjavík fyrir 1,2 milljarða króna, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Kaupandinn er fasteigna- og þróunarfélagið Landsbyggð ehf., sem festi á dögunum kaup á Landsbankahúsinu við Austurstræti 11 og Hafnarstræti 10,12 og 14 fyrir 2,85 milljaðra króna. Meðal annarra verkefna Landsbyggðar er uppbyggingin í miðbæ Selfoss í gegnum dótturfélagið Sigtún þróunarfélag ehf.

Landsbyggð í eigu Kristjáns V. Vilhelmssonar, eins stofnenda Samherja, og Leós Árnasonar.

„Við sjáum fram á að nýta þetta hús á fjölbreyttan og metnaðarfullan hátt. Staðsetningin er frábær, miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og nálægt helstu samgönguæðum. Við teljum að húsið geti orðið fyrsta flokks atvinnuhúsnæði þar sem fara saman skrifstofu-, þjónustu- og verslunarrými,“ segir Guðjón Auðunsson, stjórnarformaður Landsbyggðar ehf., um kaupin á Háaleitisbraut 68.

Höfuðstöðvar í hálfa öld

Húsið að Háaleitisbraut 68 var auglýst til sölu í apríl síðastliðnum og bárust sex tilboð. Húseignin er 4.555 fermetrar eða um 56% af skráðri stærð alls hússins.

Fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka hafði umsjón með söluferlinu.

Landsvirkjun var í tæpa hálfa öld til húsa á Háaleitisbrautinni. Ríkisfyrirtækið segir að húsnæðið hafi ekki þótt lengur hentugt fyrir starfsemina.

Í júní í fyrra samþykkti stjórn fyrirtækisins að selja húsið, en Landsvirkjun hafði þá komið sér fyrir í húsnæði við Katrínartún þar sem hún mun hafa aðsetur þar til nýjar höfuðstöðvar verða tilbúnar. Þær er áformað að reisa austast á Bústaðavegi í Reykjavík, þar sem Landsvirkjun keypti lóðir í febrúar sl.

„Við hjá Landsvirkjun fögnum því að gömlu höfuðstöðvarnar okkar séu komnar í hendur nýrra eigenda sem hafa mikla reynslu af uppbyggingar- og umbreytingaverkefnum. Það fór vel um okkur áratugum saman á þessum einstaka útsýnisstað í miðri borginni með góðum grönnum. Við einbeitum okkur núna að því að undirbúa byggingu nýrra höfuðstöðva. Það mál er komið á rekspöl þótt endanlegar ákvarðanir um uppbyggingu liggi ekki fyrir,“ segir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni hjá Landsvirkjun.