Laxey, félag sem byggir upp landeldi á laxi í Vestmannaeyjum, lauk nýlega 900 milljóna króna viðbótar hlutafjáraukningu, að því er kemur fram í tilkynningu.

„Nýir öflugir hluthafar tóku þátt núna og má þar nefna Farvatn Private Equity og Kontrari, tvö norsk fjölskyldufélög með mikla reynslu af fjárfestingum tengdum fiskeldi.“

Laxey, félag sem byggir upp landeldi á laxi í Vestmannaeyjum, lauk nýlega 900 milljóna króna viðbótar hlutafjáraukningu, að því er kemur fram í tilkynningu.

„Nýir öflugir hluthafar tóku þátt núna og má þar nefna Farvatn Private Equity og Kontrari, tvö norsk fjölskyldufélög með mikla reynslu af fjárfestingum tengdum fiskeldi.“

Ofangreind fjármögnun kemur til viðbótar við tæplega 6 milljarða króna hlutafjáraukningu sem Laxey lauk í apríl síðastliðnum. Félagið segir að sú ákvörðun að fara í viðbótar hlutafjáraukningu skýrist af miklum áhuga fjárfesta í framhaldi af hlutafjárútboðinu í vor.

Þar til í byrjun þessa árs var Laxey aðallega fjármagnað af fjölskyldu Sigurjóns Óskarssonar.

“Áframhaldandi eftirspurn frá öflugum fjárfestum endurspeglar styrk verkefnisins í heild sinni. Samhliða því að gera okkur kleift að hefja undirbúning á öðrum áfanga, koma þessir öflugu fjárfestar með aukna reynslu og þekkingu í verkefnið“ segir Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður Laxeyjar.

„Nú er það undir okkur komið að framkvæmdir og uppbygging lífmassans haldist áfram á réttri braut. Það er í raun ótrúlegt að fylgjast með daglegum framgangi verkefnisins og það var stór stund þegar fyrsta 5000 m3 fiskeldiskerið fyrir áframeldið var reist í lok júní, allt samkvæmt upprunalegri tímaáætlun“.

Norski fjárfestingabankinn Arctic Securities var umsjónaraðili hlutafjárútboðsins, en Mar Advisors eru fjármálaráðgjafar fyrir Laxey.

Annar áfangi uppbyggingarinnar fram undan

Fjármögnunin verður nýtt til að hefja undirbúning á öðrum áfanga í uppbyggingu á landeldi Laxeyjar.

Áfangi tvö mun bæta 4.500 tonna framleiðslu á laxi við þau 4.500 tonn sem eru nú þegar fullfjármögnuð í áfanga 1. Alls er stefnt að því að byggja áframeldið upp í sex jafnstórum áföngum.

„Uppbygging félagsins gengur vel. Seiðastöðin hefur hafið starfsemi með móttöku tveggja seiðahópa, sem dafna vel. Bygging á seiðastöðinni verður fullkláruð í júlí en heildar framleiðslugeta er 4 milljónir seiða á ári. Seiðin verða nýtt bæði við framleiðslu á laxi til manneldis á staðnum auk framleiðslu stórseiða – en fyrsta sala á stórseiðum er áætluð sumarið 2025.“

Félagið segir áframeldið einnig ganga vel. Fyrsta 5.000 m3 fiskeldiskerið var reist í Viðlagafjöru í júní og í mars á þessu ári voru sex stórseiða ker reist á sama svæði, sem hvert um sig rúmar 900 m3.