Magnús Scheving hefur í gegnum fjárfestingarfélagið, LZT Holding ehf., náð samkomulagi við Warner Bros, Discovery, um kaup á öllum eignum LazyTown. Undir kaupin falla allir sjónvarpsþættir, vörumerki og hugverkaréttindi LazyTown, um heim allan.

Árið 2011 keypti Turner samsteypuna LazyTown og setti þá inn pöntun fyrir tuttugu og sex nýja sjónvarpsþætti og kostaði framleiðslan á þeim tíma yfir 25 milljónir dollara.

Framleiðsla nýju þáttanna var unnin í Studio Lazytown í Garðabænum, líkt og allir sjónvarpsþættir Lazytown þar á undan. Við það jókst eignasafn Lazytown í 97 hálftíma sjónvarpsþætti fyrir börn sem voru á þessum tíma sýndir í 170 löndum og náðu til 500 milljóna heimila.

LazyTown er enn í dag eitt þekktasta vörumerki Íslands og var gríðarlega vinsælt í sjónvarpi úti um allan heim. Þættirnir slógu áhorfsmet í Bandaríkjunum, Þýskalandi, á Englandi og Spáni og víðs vegar í Suður-Ameríku og Ástralíu. Einnig unnu þeir til fjölda verðlauna og hlutu meðal annars hin virtu BAFTA sjónvarpsverðlaun.

LazyTown er 30 ára á þessu ári og verður haldið upp á tímamótin en vörumerkið var mikil lyftistöng fyrir íslenskan sjónvarps- og kvikmyndaiðnað á sínum tíma. Skapaði það hundruð starfa í þau 26 ár sem fyrirtækið starfaði hér á landi.

„Það er mikill heiður að tryggja kaupin á LazyTown og ljúft fyrir mig að ná barninu mínu aftur heim. Ekki síður er mikið gleðiefni að geta lagt sitt af mörkum til að stuðla að bættri heilsu barna enn á ný um heim allan. Þau börn sem ólust upp við að horfa á LazyTown eru núna að verða foreldrar og þekkja hvað LazyTown stendur fyrir og í því liggja mikil tækifæri,” segir Magnús Scheving.