Lögfræðistofan Logos hagnaðist um 507 milljónir króna í fyrra, samanborið við 778 milljóna hagnað árið áður. Rekstrartekjur samstæðunnar námu rúmum 2,4 milljörðum króna en voru 2,8 milljarðar árið 2023.
Ákveðið var að leggja niður rekstur dótturfélagsins Logos Legal Services Limited, sem staðsett er í Bretlandi, í fyrra. Bókfærðar eignir móðurfélagsins námu 218 milljónum í lok síðasta árs og eigið fé nam 555 milljónum.
Lykiltölur / LOGOS slf.
2023 | |||||||
2.826 | |||||||
481 | |||||||
1.358 | |||||||
778 |
Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu, sem kom út sl. miðvikudag.