Masayoshi Son, stofnandi japanska tæknirisans SoftBank, hefur lagt til að Japan og Bandaríkin stofni sameiginlegan þjóðarsjóð (e. US-Japan sovereign wealth fund) sem fjárfesti í innviðum og tækni í Bandaríkjunum.
Son hefur ekki greint frá þessu opinberlega, en hugmyndin hefur þó verið rædd á hæsta stjórnstigi í báðum löndum, meðal annars í samtölum milli Son og bandaríska fjármálaráðherrans Scott Bessent, að því er kemur fram í grein Financial Times.
Sjóðurinn yrði í eigu fjármálaráðuneyta ríkjanna tveggja og gæti upphafsfjárfesting í sjóðnum numið allt að 300 milljörðum dala í upphafi. Hann yrði að hluta fjármagnaður með lánsfé en yrði opinn öðrum fjárfestum, þar á meðal lífeyrissjóðum og almenningi.
Markmiðið með sjóðnum yrði að tryggja ríkjunum tveimur auknar tekjur í ríkiskassann, án þess að þurfa að hækka skatta, og jafnframt að færa ríkisfjárfestingar í nýjan farveg. Tillagan er einnig hugsuð sem fyrirmynd fyrir önnur ríki sem vilja efla samstarf sitt við Bandaríkin.