Auður, fjármálaþjónusta Kviku fyrir sparnaðarreikninga, hóf á dögunum innreið sína á húsnæðislánamarkað með því að bjóða húsnæðislán á bestu kjörum sem bjóðast á breytilegum óverðtryggðum vöxtum.

Frá því á miðvikudegi hefur Auður boðið upp á óverðtryggð húsnæðislán fyrir þau sem eiga meira en 45% í sinni eign. Vextir eru breytilegir, 8,5% til að byrja með, og eru það lægstu vextir sambærilegra lána á markaðnum í dag.

Innreið Kviku á íbúðalánamarkað hefur legið í loftinu í nærri tvö ár. Þannig greindi Ármann frá því í viðtali við Viðskiptablaðið haustið 2023, skömmu eftir að hann tók við forstjórastarfinu á ný, að hann útilokaði ekki að bankinn myndi byrja að veita íbúðalán. Stefna bankans sé að stuðla að aukinni samkeppni á fjármálamarkaði og innkoman á innlánamarkaðinn hafi verið mjög árangursrík.

Nokkrum mánuðum síðar staðfesti hann svo á uppgjörsfundi að Kvika hefði í hyggju að sækja inn á íbúðalánamarkað þegar búið væri að ganga frá sölu á tryggingafélaginu TM. Salan á TM til Landsbankans gekk endanlega í gegn í lok febrúar á þessu ári og nam kaupverðið 32,3 milljörðum króna.

„Við ætlum að byggja þetta upp eins og Auði; þetta verða íbúðalán án þess að við séum með útibú eða mikla þjónustu. Við munum leggja áherslu á að þetta verði mjög sjálfvirkt,“ sagði Ármann m.a. á uppgjörsfundinum.

„Þegar kemur að íbúðalánum þá þurfum við ekki að bjóða eina vöru fyrir alla landsmenn – við getum miðað á ákveðna hópa. Og við teljum að það gefi okkur tækifæri til að byggja upp ágætlega stórt íbúðalánasafn þótt það sé auðvitað þannig að við verðum aldrei „risa-player“ á markaðinum miðað við eiginfjárstöðu okkar í dag,“ sagði hann einnig.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.