Jan Lehr­mann, þekktur danskur frum­kvöðull og fjár­festir, hefur form­lega bæst í hóp milljarðamæringa í Dan­mörku. Ný­birtur árs­reikningur fjár­festingafélags hans, Lehr­mann Family, sýnir 300 milljóna danskra króna hagnað í fyrra sem sam­svarar um 5,7 milljörðum króna.

Eigið fé félagsins er nú komið upp í tæp­lega 1,2 milljarða danskra króna sem sam­svarar um 23,1 milljarði ís­lenskra króna.

„Þetta var afar gott ár fyrir fjár­festingafélagið okkar, Lehr­mann Family. Ég vil þakka öllum fyrir­tækjunum sem við höfum fjár­fest í fyrir gott sam­starf og frábæran árangur,“ segir Lehr­mann í til­kynningu til danska við­skipta­miðilsins Børsen.

Árangurinn byggist fyrst og fremst á verðhækkunum þeirra fyrir­tækja sem Lehr­mann hefur fjár­fest í en þau spanna fjöl­breytt svið at­vinnulífsins.

Meðal þeirra eru verslunar­keðjan Normal, hug­búnaðar­fyrir­tækin Plecto og Soft­pay, fast­eigna­veitan Estaldo, vef­verslunin Luksus­ba­by.dk og garðsláttar­fyrir­tækið DM Green­keeping.

Nokkur þessara félaga eru í eigu í gegnum fjár­festinga­sjóðinn Lovemonda­ys, sem einnig er í eigu Lehr­mann.

Sam­kvæmt árs­reikningnum hefur fjöldi virkra fjár­festinga minnkað úr 14 í 11, en á móti hefur fjár­festingarfé vaxið úr 871 milljón upp í rúm­lega 1,1 milljarð danskra króna.

Landsþekktur í „Løvens Hule“

Lehr­mann varð fyrst þekktur fyrir að stofna bílasöluna Bil­ba­sen og út­gáfu­fyrir­tækið Benja­min Media, en al­menningur kynntist honum aðal­lega sem einn af fjár­festunum í vinsælu sjón­varpsþáttunum „Løvens Hule“ á DR á árunum 2019 til 2022.

Á þeim tíma fjár­festi hann meðal annars í fast­eigna­veitunni Estaldo, hunda­fóðurs­fram­leiðandanum Vuf­feli, garðsláttar­fyrir­tækinu DM Green­keeping og málningar­fram­leiðandanum Decofar­ver.

Árið 2022 ákvað hann að hætta í þáttunum og ein­beita sér að færri en stærri fjár­festingum. Síðan þá hefur hann meðal annars losað sig við hlut í Repeatly bíla­leiguþjónustu, Decofar­ver og kjöt­vef­versluninni Mr. Beef.