Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 247 milljónum króna hjá verslunarveldinu S4S í fyrra. S4S rekur meðal annars Steinar Waage, AIR og Ellingsen. Til samanburðar nam EBITDA 178 milljónum árið 2023.

Heildarsala samstæðunnar nam 4,7 milljörðum króna á árinu 2024, samanborið við 5,3 milljarða árið áður. Þó veltan hafi dregist saman, einkum vegna tímabundinna lokana þriggja verslana í kjölfar eldsvoða í Kringlunni í júní í fyrra, náði félagið að bæta afkomu sína verulega. Verslanirnar opnuðu aftur um haustið og bættu tjónabætur sem S4S fékk vegna brunans tapaða framlegð.

Félagið skilaði 38 milljóna króna hagnaði eftir skatta í fyrra, sem er 70 milljóna króna viðsnúningur frá tapi upp á 32 milljónir árið áður. Það var í fyrsta og eina sinn í sögu félagsins sem það hefur skilað tapi en meginástæða tapsins var endurskipulagning birgða sem ráðist var í árið 2023.

Pétur Þór Halldórsson er stofnandi og annar stærstu hluthafa S4S. Hann á 31,2% hlut en Sjávarsýn, eignarhaldsfélag Bjarna Ármannssonar, á jafn stóran hlut. Horn IV, framtakssjóður í stýringu Landsbréfa, á 22% hlut í félaginu en sjóðurinn kom inn í hluthafahópinn fyrir rúmlega þremur árum. Þá á Hermann Helgason, rekstrarstjóri verslunarsviðs S4S, 7,8% hlut rétt eins og Georg Kristjánsson, sölustjóri samstæðunnar.

S4S rekur fjölbreytta verslanastarfsemi með áherslu á skó, fatnað og útivist. Tækjasala félagsins í BRP Ellingsen á Vínlandsleið, þar sem m.a. eru seld sexhjól, vélsleðar, sæþotur og fjórhjól – hefur að sögn Péturs verið öflug. Til marks um það nam sala þess um 1,3 milljörðum árið 2024.

„S4S hefur á undanförnum árum byggt upp eina stærstu og öflugustu netverslun landsins og voru rafræn gjafakort félagsins enn meðal vinsælustu jólagjafa fyrirtækja á árinu. Sömuleiðis var góð sala á tjöldum og öðrum útileguvörum í Ellingsen árið 2024.“

Undanfarin ár hafi félagið verið að leita tækifærum til frekari vaxtar með kaupum á fyrirtækjarekstri og mun vinnan við að leita að réttu tækifærunum halda áfram að hans sögn. „S4S rekur alls tólf verslanir á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri, auk netverslana, og heldur áfram að leggja áherslu á sterka þjónustu, fjölbreytt vöruúrval og gæðavörur.“

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.