Hjónin Jóhann Harðarson og Brynja Brynjarsdóttir, eigendur Hraunsnefs Sveitahótels í Norðurárdal, vinna nú hörðum höndum að því að byggja náttúruböð sem verða staðsett við hlið veitingastaðar hótelsins.
Náttúruböðin verða fullkláruð í byrjun ágúst og munu þá bjóða upp á vaðlaug, saunu, heita laug og kaldan pott ásamt nýjum búningsklefum og afgreiðsluaðstöðu.
Hraunsnef Sveitahótel fagnaði á dögunum tuttugu ára afmæli sínu en hjónin opnuðu hótelið þann 16. júní 2005. Jóhann segir að draumurinn um að vera með náttúruböð hafi lengi verið til staðar og ákváðu þau nýlega að láta til skarar skríða.
„Við erum búin að lifa af eitt hrun og eitt Covid en þrátt fyrir það var árið í fyrra það erfiðasta. Það var mikið rigningasumar og við vorum með of marga starfsmenn fyrir of fáa gesti, en í stað þess að gefast upp þá ákváðum við bara að gefa í og hefja framkvæmdir.“
Nánar er fjallað málið í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.