Innleiðing nýrra fjármálareglna Evrópusambandsins, svokallaðra Capital Requirements Regulation III (CRR III), mun leiða til umtalsverðra breytinga á útlánaskilyrðum hér á landi. Frumvarpið, sem efnahags og viðskiptanefnd Alþingis afgreiddi úr nefnd í byrjun mánaðar, kveður á um innleiðingu ESB-reglugerðar og á að efla viðnámsþrótt banka með því að gera eiginfjárkröfur áhættunæmari og betur í takt við raunverulega áhættu.
Ein helsta breytingin í frumvarpinu felst í því hvernig veðhlutföll fasteignalána eru metin og hvaða áhættuvog þau fá í reikningum banka.
Lán með veðhlutfall undir 55% munu njóta lægri áhættuvogar, eða aðeins 20%, en á móti hækka áhættuvogir lána sem fara yfir 55% veðhlutfall í 75%.
Eiginfjárbinding í slíkum lánum verður einnig hærri í verðtryggðum lánum en óverðtryggðum. Óvíst er þó hvort strangari reglur um mat á verðmæti fasteigna vega upp á móti því þar sem bankar mega nú ekki lengur reikna með nýlegu hækkandi markaðsverði við mat á veðhlutfalli.
Kerfislega mikilvægu bankarnir þrír, Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn, hafa allir birt upplýsingar um áhrif regluverksins.
Samkvæmt Arion og Íslandsbanka mun regluverkið auka útlánagetu þeirra um tugi milljarða. Kvika banki hefur ekki greint opinberlega frá áhrifum regluverksins á lánabók bankans en ljóst er að áhrifin á Kviku verða þó töluverð.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 5.995 kr. á mánuði