Flestir lífeyrissjóðir landsins hafa myndað sameiginlegan vettvang vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna ÍL-sjóðs í ljósi þeirra hagsmuna sem eru í húfi fyrir sjóðfélaga. Greint var frá þessu á upplýsingafundi sem flestir lífeyrissjóðir landsins mættu til í dag, að því er kemur fram í tilkynningu.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur lýst því yfir að ríkið hafi ákveðið að grípa til aðgerða vegna stöðu sjóðsins og viðrað þar hugmyndum um að slíta honum með lagasetningu.
„Telja forsvarsmenn sjóðanna rétt að vinna saman í greiningu á stöðu sjóðanna vegna þessa. Hver og einn sjóður mun að endingu taka sjálfstæða ákvörðun um málið.“
Logos ráðinn ráðgjafi lífeyrissjóðanna
Á fundi fjármálaráðuneytisins í lok síðasta mánaðar lagði Bjarni fram þrjár valkosti ríkisstjórnarinnar vegna stöðu ÍL-sjóðs. Í fyrsta lagi að halda áfram að leggja sjóðnum til fjármuni, sem Bjarni telur ekki koma til greina. Í öðru lagi að knýja sjóðinn í gjaldþrot með sérstakri lagasetningu. Í þriðja lagi að ná samkomulagi við skuldabréfaeigendur, sem að stærstum hluta eru lífeyrissjóðir, um uppgjör.
„Á fundinum í dag kom fram að einhugur væri um samstarf vegna greiningu stöðunnar vegna þessa máls, enda gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir íslenska sjóðfélaga. Þegar hefur verið gengið frá ráðningu lögfræðistofunnar Logos sem lögfræðilegs ráðgjafa lífeyrissjóðanna, unnið er að því að greina lögfræðileg álitamál, hagsmuni sjóðanna – og þar með almennings í landinu – og frekari framgangi málsins. Þá hafa fjárhagslegir ráðgjafar jafnframt verið ráðnir,“ segir í tilkynningunni.