Þráinn Vigfússon, eigandi Ameríkuferða, segist ekki kannast við það að Íslendingar séu að sýna ferðalögum til Bandaríkjanna minni áhuga en áður fyrr. Hann segir að lítill munur sé á sölu ferða í ár miðað við árin á undan.
Ameríkuferðir er ferðaskrifstofa sem býður upp á ýmsar ferðir víða um Bandaríkin og má þar nefna Þjóðveg 66, Flórída, stórborgir á austur- og vesturströndinni og Suðurríkin.
„Við höfum heyrt um það á netinu að það væri ekki gott að fara til Bandaríkjanna núna þegar Trump er við völd, en flestir vita að það búa 360 milljónir manns þar og Ameríka gengur eins þrátt fyrir svona fréttir,“ segir Þráinn.
Fjöldi Evrópuþjóða hafa nýlega gefið út ferðaviðvaranir vegna ferðalaga til Bandaríkjanna vegna stefnubreytinga stjórnvalda þar. Íslensk stjórnvöld hafa þó ekki gefið út slíkar viðvaranir en utanríkisráðuneytið er hins vegar að undirbúa ferðaleiðbeiningar fyrir hinsegin fólk sem hyggst ferðast til Bandaríkjanna.
Þráinn bendir á að fréttaflutningurinn í Evrópu sé öðruvísi en í Bandaríkjunum og að evrópskir miðlar og stjórnmálamenn eigi það til að sýna Trump meiri andstöðu, sérstaklega í tengslum við norðurslóðir og stríðið í Úkraínu.
„Þessar ferðir auglýsa sig best sjálfar“
Mikil aðsókn hefur þó verið í ferðalög Íslendinga þangað og segir hann að hópur Íslendinga á vegum ferðaskrifstofunnar hafi til að mynda lent í morgun frá Bandaríkjunum og að það sé mikill áhugi fyrir fleiri ferðum út árið.
„Við erum með ferð í lok september sem kallast Villta vestrið en það er tveggja vikna ferð um þjóðgarða og stærstu stórborgir vesturstrandarinnar. Það verður heil rúta með bara Íslendingum og það hefur selst vel í þá ferð.“
Ameríkuferðir hafa aðstoðað marga Íslendinga sem ferðast til Bandaríkjanna þar sem bókunarferlið þar í landi getur oft reynst flókið. Þar að auki eru mörg hótel sem vinna einungis með ferðaskrifstofum.
„Þessar ferðir auglýsa sig best sjálfar. Þú ferð þangað með góðum hópi og góðum farastjóra og ég held að venjulegt fólk viti það alveg að lífið gengur sinn vana gang sama hver er í Hvíta húsinu.“