Fyrir 30 árum stofnuðu þeir Jóhann Hákonarson og Ágúst Gunnarsson heildverslunina Dan-Inn. Nafn fyrirtækisins vísar til þess að allar vörur þess eru fluttar inn frá Danmörku og hefur félagið séð um að selja til íslenskra endursöluaðila.

Á síðasta ári tóku Gunnar Örn Arnarson og Kári Pétursson við rekstri fyrirtækisins og hafa síðan þá verið að byggja ofan á það góða bú sem þeir tóku við.

„Eitt af því sem við rákum svo strax augun í voru þessi Everdure-grill. Fyrirtækið hafði áður keypt umboðið og flutt inn nokkur stykki en við sáum strax tækifæri og ákváðum að hjóla á þau,“ segir Gunnar.

Grillin eru hönnuð af Michelin-kokkinum Heston Blumenthal en honum fannst hefðbundin grill ekki hitna nógu vel og voru heldur ekki nógu falleg.

Everdure-grillin eru þegar fáanleg í verslunum Kjötkompaní, Smiðjunni Fönix á Hellissandi, Miðstöðinni í Vestmannaeyjum og Versluninni Pan í Neskaupstað. Eftirspurnin hefur verið gríðarleg en ásamt flottu útliti þá hafa grillin þann eiginleika að ryðga ekki.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.