Kröfuhafar lýstu yfir 124 milljónum krafna í þrotabú Eins og fætur toga ehf. en einungis fékkst greitt upp í um 20 milljónir sem nemur um 16% af öllum lýstum kröfum.
Bú Eins og fætur toga ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta samkvæmt dómsúrskurði í mars í fyrra en skiptum lauk formlega 7. febrúar síðastliðinn.
Þeim fjármunum sem fundust í búinu var ráðstafað upp í skiptatryggingu, veðkröfur og forgangskröfur. Samkvæmt tilkynningu til lögbirtingablaðsins var skiptatrygging að fjárhæð kr. 350.000 endurgreidd að fullu.
Lýstar veðkröfur námu tæpum 18 milljónum og fengust greiddar að fullu á meðan Lýstar forgangskröfur námu 38 milljónum en einungis fékkst greitt um 2 milljónir.
Fjóla Signý Hannesdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri heildsölunnar Run2, umboðsaðila Brooks á Íslandi, tók við rekstri verslunarinnar Fætur Toga eftir að félagið var tekið til gjaldþrotaskipta.
Verslunum Eins og fætur toga var tímabundið lokað í lok mars í fyrra en félagið var í eigu Lýðs B. Skarphéðinssonar og Elvu Bjarkar Sveinsdóttur.
Fjóla Signý opnaði verslanir félagsins í óbreyttri mynd eftir að hún eignaðist félagið skömmu síðar.