Endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækið PwC hefur sagt upp um 1500 starfsmönnum í Bandaríkjunum. Uppsagnirnar ná til um 2% starfsmanna fyrirtækisins sem aðallega störfuðu við endurskoðum en stór hluti frétti af uppsögnunum í gegnum Teams fundarboð. Um er að ræða aðra hópuppsögnina á rúmu ári en í kringum 1800 störf voru lögð niður í september síðastliðnum.
Að því er segir í frétt Financial Times hefur sögulega lítil starfsmannavelta haft mikil áhrif á stærstu ráðgjafafyrirtækin en fyrir rúmum mánuði var greint frá fjöldauppsögnum hjá Deloitte og í nóvember var 330 eða um 4% starfsmanna í endurskoðunardeild KPMH sagt upp.