Liv Bergþórsdóttir, fyrrverandi forstjóri Nova, sakar Guðjón Már Guðjónsson, stofnanda OZ, um „sögufölsun“ um aðkomu hans að stofnun og uppbyggingu Nova. Liv segir söguskýringu Guðjóns „stappa nærri siðblindu ef hann trúir þessu sjálfur“.

Viðskiptablaðið fjallaði í gær um nýjasta hlaðvarpsþátt Íslenska draumsins þar sem Guðjón Már sagði frá ferli sínum. Hann sagðist hafa tekið að sér að stofna Nova fyrir Novator, fjárfestingarfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, á sínum tíma. Hann hafi komið að uppbyggingunni fyrstu tvö árin og svo afhent fyrirtækið til Novator og nýrra stjórnenda félagsins.

„Nova var stofnað eftir að ég hitti á [Björgólf Thor Bjórgólfsson] og Novator menn á landsleik úti í Búlgaríu. Við pitch-um hugmyndinni að það væri hægt að setja upp 3G fjarskiptanet mjög hratt með því að vinna með Orkuveitunni,“ sagði Guðjón Már, sem er stofnandi Íslandssíma.

Stappi nærri siðblindu

Liv Bergþórsdóttir, sem var forstjóri Nova frá stofnun og fram til ársins 2018, hefur birt færslu á LinkedIn þar sem hún segist tilneydd til að leiðrétta söguskýringu Guðjóns Más.

„Ég hef því miður heyrt svipað eftir honum haft áður þótt ég hafi ekki verið að eltast við það. En það sem hann segir þarna opinberlega er sögufölsun og það stappar nærri siðblindu ef hann trúir þessu sjálfur,“ segir Liv.

„Undir þessu ætla ég ekki að sitja enda veit ég að félagar mínir í stofnun Nova Joakim Reynisson og Björgólfur Thor og aðrir sem að uppbyggingunni komu taka undir með mér.“

Liv segir að Novator hafi með stofnun Nova á sínum tíma ákveðið að gera nákvæmlega það sama á Íslandi og þeir höfðu þegar verið að gera í 3G fjarskiptum erlendis, t.d. í Póllandi. Jóakim hafi unnið hjá Novator á þessum tíma.

„Guðjón Már kom ekki með hugmyndina að Nova, hann kom ekki að því að móta stefnu félagsins og hann skapaði ekki vörumerkið Nova. Þá kom hann heldur ekki að uppbyggingu félagsins né rekstri þess nema sem verktaki í gegnum félag sitt Industria.

Öllum var ljós áhugi hans á verkefninu en hugmyndir hans féllu ekki að áformum Novator og því var ég ráðin í verkefnið ásamt Jóakim. Ég vann svo viðskiptaáætlun félagsins og leiddi uppbyggingu þess ásamt Jóakim, starfsmönnum Novator og öðru góðu fólki.“

Liv segir að Nova hafi gert þjónustusamning við Industria, félag Guðjóns Más, um uppsetningu fyrstu 3G senda Nova. Samstarfið við Guðjón Má og félaga hans í Industria hafi verið mjög gott og þeir hafi unnið gott verk við að koma upp sendum félagsins.

„Guðjón hafði einnig mikinn áhuga á að vinna að efnisveitu fyrir Nova en ákvörðun var tekin um að fara aðrar leiðir. Saga Nova og uppbygging fyrirtækisins er flestum sem til þekkja vel kunn. Öðrum sem minna þekkja til vil ég ekki að sé boðið upp á svona sögufölsun.“