Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) hefur valið J.P. Morgan sem nýjan vörsluaðila erlendra eigna sjóðsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum, sem er einn stærsti lífeyrissjóður landsins með 1.458 milljarða króna í eignum (um 10,5 milljarða Bandaríkjadala) um síðustu áramót.
Þjónusta J.P. Morgan nær til alþjóðlegrar vörslu (Global Custody), árangurs- og áhættumælinga, sem og eftirliti með hlítingu sérgreindra eignasafna sjóðsins. Eftir útboð var samið við J.P. Morgan í lok árs 2024. Flutningur eigna mun eiga sér stað á árinu 2025.
Arne Vagn Olsen, forstöðumaður eignastýringar LV, segir:
„Við völdum J.P. Morgan sem samstarfsaðila okkar vegna breiddar í þjónustuframboði þeirra, alþjóðlegrar reynslu og lausna sem geta vaxið með okkur til framtíðar. Samstarf við JPM mun styðja við áframhaldandi vöxt sjóðsins á komandi árum.
Allan Nedergaard, forstöðumaður sölu og verðbréfaþjónustu J.P. Morgan á Norðurlöndum, bætir við:
„Það er okkur ánægja að hefja samstarf við LV og styðja við áframhaldandi vöxt sjóðsins. Þessi nýi samningur undirstrikar einnig áframhaldandi skuldbindingu okkar við íslenskan markað og styrkir stöðu okkar sem leiðandi þjónustuaðili fyrir stofnanafjárfesta á Norðurlöndum.“