Hrein nafnávöxtun sameignardeildar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LIVE) var 12,4% á árinu 2023 eða sem samsvarar 7,3% raunávöxtun 7,3%. Ávöxtunarleiðir í séreign skiluðu frá 8,2% til 13,0% nafnávöxtun.
Heildareignir LIVE, sem er næst stærsti lífeyrissjóður landsins námu 1.458 milljörðum króna í árslok 2024, samanborið við 1.288 milljarða árið áður.
Framlag erlendra hlutabréfa vó þyngst
Í tilkynningu LIVE kemur fram að undanfarin 10 ár hafi vægi hlutabréfa hækkað sem hlutfall af eignasafni sameignardeildar. Það feli í sér meiri áhættu en ella, en á móti megi vænta hærri ávöxtunar til lengri tíma litið.
„Framlag erlendra hlutabréfa til ávöxtunar ársins vó þyngst og innlenda hlutabréfasafnið skilaði einnig jákvæðri ávöxtun en framlag allra eignaflokka var jákvætt á árinu.“
Af heildareignum sjóðsins er 50% á Íslandi, 37% í Norður-Ameríku og 9% í Evrópu.
Tryggingafræðileg staða LIVE var neikvæð um 4,3% í lok árs 2024 en til samanburðar var hún neikvæð um 6,8% árið áður. Sjóðurinn segir að breytingin komi til vegna góðrar ávöxtunar.
Lífeyrisgreiðslur jukust um 17%
Fjöldi sjóðfélaga á lífeyri hjá LIVE var 26.884 í árslok 2024 og hófu 2.860 töku eftirlauna á síðasta ári.
Lífeyrisgreiðslur sameignardeildar námu rúmum 40 milljörðum króna og hækkuðu um 17,0% frá fyrra ári. Lífeyrisgreiðslur sameignardeildar eru verðtryggðar og hækka miðað við vísitölu neysluverðs til verðtryggingar sem hækkaði um 4,8% 2024.