Hafrannsóknastofnun segir í tilkynningu að bráðabirgðaniðurstöður gefi til kynna að þær loðnumælingar sem lokið er við nægi ekki til að breyta fyrri ráðgjöf um að engar veiðar verði leyfðar veturinn 2024/2025.

Niðurstöður bermálsmælinganna sýna að heildarmagn fullorðinnar loðnu sem myndar veiðistofn vertíðarinnar, er aðeins um tveir þriðju þess sem mældist í september 2024.

Rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson, ásamt þremur uppsjávarveiðiskipum, Heimaey, Polar Ammassak og Barða, hafa verið við loðnumælingar síðan 16. janúar.

Stofnunin segir að veður hafi tafið fyrir mælingum að einhverju leyti en ekki haft teljandi áhrif á niðurstöður þeirra. Mælingar séu núna langt komnar og einungis mælingar Árna Friðrikssonar úti af Vestfjörðum sem eftir standa og munu þær klárast um eða eftir helgi.

„Þótt mælingum sé ekki lokið telur Hafrannsóknastofnun rétt að greina strax frá bráðabirgða niðurstöðum mælinganna fram til 24. janúar. Fyrir austan land varð vart við fullorðna loðnu á nokkuð stóru svæði með mesta þéttleika syðst. Einnig var fullorðin loðna norðvestan til á athugunarsvæðinu en nánast ekkert sást af henni fyrir Norðurlandi.“

Fyrirvari er gerður við tilkynningu stofnunarinnar um að mælingum sé ekki lokið fyrir vestan land. Gert sé ráð fyrir að niðurstöður og samantekt alls leiðangursins gæt legið fyrir öðru hvoru megin við næstu helgi.

„Ákvarðanir um frekari mælingar liggja ekki fyrir enn sem komið er.“

Leiðarlínur fjögra skipa í loðnumælingu í mismunandi litum dagana 16.-23. janúar 2025 og þéttleiki loðnu samkvæmt bergmálsmælingum.