Lagaviti hefur nú undirritað samstarfssamning við LOGOS, stærstu lögmannsstofu landsins, um áframhaldandi þróun gervigreindarhugbúnaðarlausnar Lagavita.
Í tilkynningu segir að Lagaviti vinni að þróun gervigreindarhugbúnaðarlausnar sem hönnuð er af lögfræðingum fyrir lögfræðinga.
Markmiðið sé þá að búa til lausn sem skili lögfræðilega tækri röksemdafærslu í formi vinnuskjals sem notandinn geti óskað eftir og auki þar með skilvirkni í lögfræðistörfum.
„Við munum leggja okkur alla fram um að standa undir því trausti sem LOGOS hefur sýnt okkur með áherslu á gæði röksemda og úrlausna, öryggi gagna og góða notendaupplifun – allt með það að markmiði að lögmenn stofunnar geti einbeitt sér að hinni raunverulegu lögfræðilegu vinnu og látið Lagavita um annað sem henni fylgir,“ segir Jóhannes Eiríksson, framkvæmdastjóri Lagavita.