Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, LSR, hefur birt yfirlýsingu á heimasíðu sinni vegna ákvörðunar Hagkaups, dótturfélags Haga, um að hefja áfengissölu í gegnum vefverslun. LSR er næst stærsti hluthafi Haga með 13,5% hlut.

Fram kemur að LSR, sem er stærsti lífeyrissjóður landsins, hafi átt samtal við forsvarsmenn Haga út af málinu.

Sjóðurinn segist deila áhyggjum margra, þar á meðal samtaka heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka, um að með netverslanir með áfengi sé verið að auka aðgengi að áfengi sem geti leitt til aukinna lýðfræðilegra og félagslegra vandamála.

„Fyrir liggur að lögmæti starfsemi netverslana með áfengi er til rannsóknar hjá yfirvöldum, ásamt því sem verið er að endurskoða lagaumhverfi áfengissölu í landinu. LSR mun áfram fylgjast með framvindu þessa máls og opna á frekara samtal við Haga hf. eftir því sem þurfa þykir,“ segir í yfirlýsingu LSR.

Bent er á að í eigendastefnu LSR segi m.a. að sjóðurinn geri kröfu um að félög sem hann fjárfestir í sýni ábyrgð gagnvart félagslegum þáttum, umhverfislegum þáttum og að starfað sé í samræmi við góða stjórnarhætti. Jafnframt hvetji sjóðurinn félög til að sýna ábyrgð gagnvart félagslegum og umhverfislegum þáttum í starfsemi sinni.

„Ýmsir hafa gagnrýnt þessa starfsemi Haga hf., þar á meðal samtök heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka, sem telja að með henni sé verið að auka aðgengi að áfengi, sem getur leitt til aukinna lýðfræðilegra og félagslegra vandamálam,“ segir í yfirlýsingunni.

„LSR deilir þessum áhyggjum og kallaði því eftir samtali við Haga hf. þar sem sjóðurinn áréttaði að félagið, í ljósi umfangs þess í íslensku efnahagslífi, beri mikla ábyrgð í sinni starfsemi. Sérstaklega ef ráðist er í aðgerðir á borð við þessar, þar sem augljóslega er reynt á þanþol bæði laga og samfélagslegrar ábyrgðar.“

Í lok síðasta mánaðar var greint frá því að framkvæmdastjórar lífeyrissjóðanna Brúar, Almenna og Lífsverks hefðu allir sett sig í samband við forsvarsmenn Haga vegna áfengissölu Hagkaups. Ólíkt LSR þá birtu sjóðirnir hins vegar ekki yfirlýsingu á vef sínum.