Af þeim 56 fagfjárfestum sem fengu að kaupa í tilboðsbók B í nýafstöðnu útboði ríkisins á hlutum í Íslandsbanka var Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins umsvifamestur en lífeyrissjóðurinn fékk að kaupa hluti fyrir 1 milljarð króna.
Fjármálaráðuneytið tilkynnti eftir lok útboðsins að tilboðsbók A hafi lækkað niður í 86,9 milljarða króna að loknum greiðslufresti og að teknu tilliti til aðlögunar og leiðréttingar.
Endanleg stærð A-bókarinnar nemur um 95,9% af 90,6 milljarða króna heildarvirði útboðsins.
Um 3,7 milljörðum króna var úthlutað til 56 aðila í tilboðsbók B. Tilboð í tilboðsbók B námu 84,3 milljörðum króna.
Á eftir LSR var Frjálsi lífeyrissjóðurinn með um hálfan milljarð en þar á eftir kom Kvika banki með um 300 milljón króna hlut.
Hægt er að sjá lista yfir þessa 56 aðila hér að neðan.
