Luvsannamsrain Oyun-Erdene, forsætisráðherra Mongólíu, hefur sagt af sér eftir að hafa tapað vantrauststillögu á þingi landsins í kjölfar vaxandi óánægju meðal almennings vegna hegðunar sonar hans á samfélagsmiðlum.

Oyun-Erd­ene, sem hefur verið við völd síðan 2021, hlaut aðeins 44 at­kvæði af þeim 64 sem hann þurfti til að halda völdum í at­kvæða­greiðslu sem fór fram aðfaranótt þriðju­dags.

Hann hafði sjálfur kallað eftir van­trausts­til­lögunni í síðustu viku í ljósi vaxandi spennu innan eigin flokks og mót­mæla vegna umdeildra ljósmynda sem sonur hans setti á samfélagsmiðla.

Sonur Oyun-Erd­ene, hinn 23 ára gamli Temu­u­len, er dug­legur að sýna frá lúxuslíf­stíl sínum á sam­félags­miðlum.

Temu­u­len sést reglu­lega í rándýrum hönnunar­fatnaði og keyrandi um á Mercedes Benz-bif­reið. Þar sem Temu­u­len er at­vinnu­laus hafa myndirnar vakið mikla um­ræðu um mis­notkun á opin­berum fjár­munum en faðir hans er sagður fjár­magna líf­stílinn.

Mongólski alþýðu­flokkurinn, sem leitt hefur ríkis­stjórn í sam­starfi við tvö önnur stjórn­málaöfl frá þing­kosningum í fyrra, hyggst nú reyna að mynda nýja ríkis­stjórn sam­kvæmt Financial Times.

Óvissa á viðkvæmum tíma

Mongólía, sem hefur um ára­bil reynt að nýta auðlindir sínar til að laða að er­lenda fjár­festingu stendur nú frammi fyrir pólitískri óvissu.

Landið, sem losnaði undan ein­ræði sósíal­ismans á tíunda ára­tugnum, hefur á síðustu árum gert til­raunir til að efla lýðræði og efna­hags­lega sjálf­stæði, meðal annars með fjár­festingum í námu­iðnaði.

Oyun-Erd­ene lagði áherslu á að draga úr fátækt, með mark­miðum um að minnka hlut­fall fátækra íbúa niður í 15% fyrir lok ára­tugarins.

Hann hafði einnig lagt mikla áherslu á sam­starf við vestræna aðila á borð við Rio Tin­to og Ora­no Group, og undir­ritaði meðal annars samning um 1,6 milljarða dala fjár­festingu í úraníum­vinnslu með franska fyrir­tækinu.

Í ræðu á þinginu áður en at­kvæða­greiðslan fór fram reyndi Oyun-Erd­ene að verja verk sín og árangur ríkis­stjórnarinnar, meðal annars í lækkun skulda, orkumálum og stórauknum út­flutnings­tekjum. Hann viður­kenndi þó að hafa sinnt of lítið „innan­landsmálum og félags­legum þáttum.“

Hávær mót­mæli brutust út í landinu árið 2022 vegna spillingar í kola­vinnslum landsins eru einnig talin hafa grafið undan trúverðug­leika hans. Nú bætist við reiði al­mennings vegna lífs­stíls sonar hans, sem hefur dvalið við dýrindis aðstæður er­lendis.

Hagvöxtur og betra lánshæfi

Fitch Ratings hafði í septem­ber hækkað láns­hæfis­mat Mongólíu í ljósi aukins hag­vaxtar og um­bóta og spáð um 6% hag­vexti að meðaltali næstu ár. Nú gæti pólitísk óvissa sett strik í reikninginn.

„Mörg stór inn­viða­verk­efni eru þegar komin af stað en næsta ríkis­stjórn mun standa frammi fyrir miklum áskorunum,“ sagði Bay­anjargal Byam­ba­saik­han, vara­for­maður Við­skiptaráðs Mongólíu, í sam­tali við Financial Times. Hann benti á verðbólgu, sam­drátt í út­flutnings­tekjum og áskoranir í stjórn sam­steypu­stjórna.

For­sætis­ráðu­neyti Mongólíu hefur ekki tjáð sig opin­ber­lega um niður­stöðu at­kvæða­greiðslunnar.

Næstu dagar munu skera úr um hver tekur við keflinu í landinu sem á sér mikla þýðingu fyrir heiminn vegna náttúru­auðlinda sinna.