Félagið Icelandic Home ehf. vill reisa nýtt 90-180 rýma hjúkrunarheimili miðsvæðis á Ásbrú í Reykjanesbæ. Félagið hefur sent Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum (FSRE) tilboð í verkið en stofnunin sendi snemma á árinu út markaðskönnun þar sem óskað var eftir leiguhúsnæði undir allt að 80-120 hjúkrunarrými á Suðurnesjum. Í markaðskönnuninni kemur einnig fram krafa um að húsnæðið verði afhent innan tveggja ára en í tilboði Icelandic Home er gengið út frá því að framkvæmdir taki eitt og hálft til tvö ár.

Karl Finnbogason og Þorleifur Björnsson eru tveir af eigendum Icelandic Home en félagið er tiltölulega umsvifamikið á Ásbrú. Eignasafn félagsins telur um 440 útleigueiningar sem flestar eru staðsettar á Ásbrú. Þeir eru bjartsýnir á að þeim verði boðið að borðinu og komist á samningar muni það reynast  mikil lyftistöng fyrir Ásbrúarsvæðið.

Stefnt er að mikilli íbúðauppbyggingu á svæðinu og sjá þeir uppbyggingu hjúkrunarheimilisins sem tækifæri til að lyfta ásýnd Ásbrúarsvæðisins og gera það að aðlaðandi kosti fyrir fólk og fyrirtæki. Þá opni nýtt hjúkrunarheimili á möguleika á uppbyggingu öryggis- og þjónustuíbúða í næsta nágrenni auk þess sem gert er ráð fyrir heilsugæslu á aðliggjandi svæði. Síðast en ekki síst verði um leið komið til móts við brýna þörf á fjölgun hjúkrunarrýma á landsvísu.

Íbúðablokkum breytt í hjúkrunarheimili

Í tilboði Icelandic Home er lagt upp með að tvö fjölbýlishús í eigu félagsins verði endurnýjuð og þau sameinuð með tengibyggingu sem inniheldur m.a. lyftur og stigahús. Gerir félagið ráð fyrir því að núverandi íbúar geti flutt í aðrar sambærilegar eignir félagsins á svæðinu þegar framkvæmdir hefjast.

Líkt og gengur og gerist í svona verkefnum eru gerðar ýmsar kröfur varðandi skipulag hjúkrunarheimilisins en verkfræðingurinn Sigurður Garðarsson, sem starfaði áður sem framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs og hefur unnið að skipulagi og uppbyggingu hjúkrunarheimila m.a. á Sléttuvegi og á Nesvöllum í Reykjanesbæ, var ráðgjafi félagsins við útfærslu tillögunnar fyrir hönd Icelandic Home.

Þeir gera ráð fyrir því að framkvæmdakostnaður Icelandic Home verði umtalsvert lægri en nýbygging á slíku húsnæði með því að umbreyta eldra húsnæði yfir í ný not. Nýr samningur ríkisins og Reita vegna Nauthólsvegar 50 í Reykjavík þar sem skrifstofum er breytt í hjúkrunarheimili sé til að mynda verkefni af svipuðum toga.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.