Magnús Hafliðason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri N1 og tekur samhliða því sæti í framkvæmdastjórn móðurfélagsins Festi snemma á nýju ári. Greint er frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Hann tekur við starfinu af Ými Erni Finnbogasyni sem lét af störfum sem framkvæmdastjóri N1 í sumar.
Magnús hefur síðastliðin þrjú ár gegnt starfi forstjóra Domino's á Íslandi. Áður var hann framkvæmdastjóri Domino's í Danmörku 2006-2007, rekstrar- og markaðsstjóri Domino‘s á Íslandi 2011-2014, framkvæmdastjóri Domino's í Noregi 2014-2017 og sérfræðingur í rekstrar- og markaðsmálum á erlendum mörkuðum Domino's Pizza Group á árunum 2018-2019.
Hann var framkvæmdastjóri Joe and the Juice á árunum 2019-2020 áður en hann tók við sem forstöðumaður markaðs- og samskiptasviðs Sýnar árið 2020-2021. Magnús er með Executive MBA gráðu frá Háskóla Íslands.
„Við erum gríðarlega spennt að fá Magnús Hafliðason til liðs við okkur og trúum því að hann sé rétti maðurinn til að leiða N1 áfram þar sem þekking hans og reynsla í rekstrar- og markaðsmálum ásamt góðri innsýn í tækni tengdri þjónustuupplifun viðskiptavina muni styðja við þá vegferð sem N1 er á. Magnús tekur við gríðarlega öflugu félagi sem er statt í miðjum orkuskiptum og klárt að sækja enn frekar fram. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn og hlökkum til samstarfsins,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi.
„Það er mér mikill heiður að taka við starfi framkvæmdastjóra N1, félags með langa og merka sögu sem nær aftur til ársins 1913. N1 hefur verið leiðandi afl á sínum mörkuðum og ég er afar spenntur fyrir þeim tækifærum sem felast í því að byggja á þeim trausta grunni og leiða félagið inn í nýja tíma. Fyrir höndum eru fjölmörg spennandi verkefni, og félagið er í einstakri stöðu til að styrkja sig enn frekar í takt við þær samfélagsbreytingar sem eru í gangi. Ég er fullur eftirvæntingar og hlakka til að takast á við verkefnið í samstarfi við þann hæfileikaríka hóp sem starfar hjá félaginu,“ segir Magnús Hafliðason.
Reynir Leósson aðstoðarframkvæmdastjóri
Samhliða ráðningu Magnúsar tekur Reynir Leósson við stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra N1. Reynir hefur gegnt starfi forstöðumanns fyrirtækjasviðs sl. þrjú ár.
Fram kemur að Reynir muni áfram sinna því hlutverki en taki jafnframt að sér víðtækari ábyrgð innan félagsins til að styðja við frekari sókn á breiðari grunni.
„Reynir er mjög öflugur stjórnandi sem hefur náð góðum árangri á undanförnum árum og styrkt stöðu okkar á fyrirtækjamarkaði. Hann mun reynast félaginu og viðskiptavinum vel í nýju hlutverki,“ segir Ásta Sigríður.