Magnús Ólafur Garðarsson, fyrrverandi forstjóri United Silicon, býður einbýlishús sitt við Huldubraut 28 í Kópavogi til leigu á Airbnb að því er kemur fram á mbl.is . Samkvæmt opinberum gögnum hefur Magnús þó ekki leyfi fyrir útleigu hússins.
Áður hefur komið fram að Magnús hyggst selja húsið en hann keypti það árið 2015 af Ólafi Ólafssyni, sem kenndur er við Samskip, og Ingibjörgu Kristjánsdóttur, eiginkonu Ólafs. Hann vill fá um 150 milljónir fyrir eignina.
Húsið er 304 fm að stærð en það var byggt 1994. Ólafur og Ingibjörg festu kaup á húsinu 11. nóvember 1996. Þau seldu hins vegar Magnúsi húsið þann 22. maí 2015.
Á síðunni Airbnb er hægt að leigja húsið á 294 dollara nóttina eða um 30 þúsund íslenskar á núverandi gengi dagsins. Í húsinu er hátt til lofts og vítt til veggja og margir myndu segja þetta hóflegt verð þar sem níu manneskjur geta gist í húsinu í einu.