Menningar- og viðskiptaráðherra skrifaði í gær undir nýjan samning við sjálfseignarstofnunina Almannaróm um að gegna hlutverki miðstöðvar máltækni á Íslandi til ársins 2027.

Almannarómur heldur utan um framkvæmd Máltækniáætlunar 2 fyrir hönd ráðuneytisins og vinnur markvisst að því að tryggja að íslensk tunga verði gjaldgeng í öllum samskiptum sem byggja á tölvu- og upplýsingatækni.

Samningurinn er gerður á grundvelli markaðskönnunar sem Ríkiskaup framkvæmdu fyrir ráðuneytið í byrjun mánaðar. Almannarómur var eini aðilinn sem lýsti yfir áhuga á verkefninu og gekk ráðuneytið í kjölfarið til samninga við stofnunina, sem fór einnig yfir framkvæmd Máltækniáætlunar 1, fyrir hönd ráðuneytisins á árunum 2019-2023.

„Það gleður mig mjög að búið sé að tryggja Almannarómi traustan rekstrargrundvöll til næstu ára svo að öll sú kraftmikla máltæknivinna sem er í gangi geti haldið ótrauð áfram. Þessi vinna snýst ekki aðeins um að við getum öll notað helstu forrit og tækni á okkar eigin tungumáli, heldur erum við að byggja brú á milli kynslóða,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

Samningurinn er til þriggja ára og fylgir meðal annars eftir viðhald á þeim máltækniinnviðum sem smíðaðir voru undir fyrri máltækniáætlun stjórnvalda og framkvæmd með Máltækniáætlun 2.