Mánaðarleg verðbólga í Argentínu mældist 1,5% í maímánuði og hefur ekki verið minni í fimm ár, eða frá því í maí 2020 í byrjun Covid-faraldursins. Til samanburðar var mánaðarleg hækkun vísitölu neysluverðs 2,8% í apríl.
Mánaðarleg verðbólga fór hæst upp í 25,5% í desember 2023, um sama leyti og Javier Milei var kosinn forseti Argentínu.
Tólf mánaða verðbólga í landinu mælist þó 43,5%, samanborið við 47,3% í fyrri mánuði, og er áfram há í alþjóðlegum samanburði. Ársverðbólga var síðast minni í mars 2021.
Verðbólgumælingin í maí er sögð styðja við vonir flokks Milei, La Libertad Avanza, fyrir þingkosningar í október næstkomandi. Í umfjöllun Financial Times segir að þetta sé óvæntur sigur fyrir forsetann eftir að hann afnam umdeild gjaldeyrishöft sem höfðu legið til grundvallar í baráttu hans við að ná niður verðbólgu.
Greinendur sem tóku þátt í könnun argentínska seðlabankans spá því að tólf mánaða verðbólga verði komin niður í 28,6% fyrir lok þessa árs, að því er segir í frétt Reuters.