Hluta­bréfa­verð Ís­lands­banka hækkaði um rúmt 1% í 3 milljarða króna við­skiptum í dag. Dagsloka­gengi bankans var 118,5 krónur á hlut sem er rúm­legar 11% hærra en út­boðs­gengið í nýaf­stöðnu út­boði ríkisins.

Alls voru 494 við­skipti með bréf bankans í dag en stærstu einstöku við­skiptin fóru í gegn rétt eftir há­degi. Alls skiptust rúm­lega 3 milljón hlutir um hendur á genginu 118,75 krónur á hlut sem sam­svarar um tæp­lega 362 milljón króna við­skiptum.

Þeir fjár­festar sem keyptu í út­boðinu fyrir 20 milljónir króna, sem var há­markið í til­boðs­bók A, gætu því selt hlut sinn í dag með 2.243.084 króna hagnaði.

Gengi Ís­lands­banka hefur nú hækkað um tæp 7% síðastliðinn mánuð.

Hluta­bréfa­verð Play leiddi hækkanir í Kaup­höllinni í dag er gengi flug­félagsins fór upp um 4,6% í ör­við­skiptum. Dagsloka­gengi Play var 0,8 krónur á hlut sem er 20% lægra en í árs­byrjun.

Hluta­bréfa­verð Reita hækkaði um 4% í 346 milljón króna við­skiptum. Dagsloka­gengi fast­eignafélagsins var 117 krónur á hlut.

Hluta­bréf fast­eignafélagsins Eikar hækkuðu um rúm 3% en líkt og Við­skipta­blaðið greindi frá í dag juku Brim­garðar hlut sinn í félaginu fyrir um 200 milljónir nýverið.

Dagsloka­gengi Eikar var 13,95 krónur á hlut en gengi félagsins hefur hækkað um 13% síðastliðinn mánuð.

Dagsloka­gengi Eikar var 13,95 krónur á hlut en gengi félagsins hefur hækkað um 13% síðastliðinn mánuð.

Gengi Iceland Sea­food International hækkaði einnig 3% í við­skiptum dagsins og var dag­loka­gengi félagsins 5,15 krónur á hlut.

Gengi Ís­félagsins fór upp um 2,4% í við­skiptum dagsins og var dag­loka­gengið 128 krónur á hlut eftir rúm 14% lækkun á árinu.

ISI og Ís­félagið birta bæði upp­gjör eftir lokun markaða.

Úr­vals­vísi­talan hækkaði um 0,68% og lokaði í 2.681,31 stigum. Heildar­velta á markaði var 7,7 milljarðar.