Það var gert opinbert í dag að íslenska hjólafyrirtækið Lauf Cycles hefur hlotið Design & Innovation Awards 2025 en verðlaunin voru veitt fyrir nýjustu hönnun fyrirtækisins, fjallahjólið Lauf Elju.
Verðlaunin eru þau stærstu í hjólabransanum á heimsvísu og eru því gjarnan kölluð óskarsverðlaun hjólageirans.
Í tilkynningu segir að Elja hafi fyrst verið kynnt fyrir hjólablaðamönnum í september síðastliðnum og hafi síðan þá fengið mikið lof gagnrýnenda um allan heim.
„Við erum í skýjunum með þetta. Við unnum náið með dekkjaframleiðandanum Goodyear að verkefninu. Saman viljum við meina að við höfum skapað hraðasta fjallahjól heims. Flóðbylgja lofs frá hjólamiðlum úr öllum áttum bendir til þess að okkur hafi tekist ætlunarverk okkar,“ segir Benedikt Skúlason, framkvæmdastjóri Lauf.
Hjólið er sagt marka upphaf nýrra tíma í fjallahjólreiðum. Elja skari þá fram úr samkeppninni með einfaldri hönnun afturfjörðunar, ásamt því að rúma mun stærri dekk en áður hefur þekkst á keppnisfjallahjólum