Mathöllin VERA matur og drykkur mun rísa í Grósku í Vatnsmýri í maí á þessu ári. Um er að ræða mathöll með átta veitingastöðum og viðburðarsal sem hugsaður er fyrir tónleika, uppistand, veislur og aðra eins viðburði. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Forsvarsmenn verkefnisins og eigendur eru Björn Bragi Arnarsson og Hafsteinn Júlíusson, en Björn er framkvæmdastjóri mathallarinnar á meðan Hafsteinn og fyrirtæki hans HAF Studio sáu um hönnunina. Þeir félagar hafa haslað sér völl á mathallarmarkaði, en þeir opnuðu mathöllina BORG29 á Borgartúni 29 á síðasta ári, ásamt Karítas Sveinsdóttur hönnuði og öðrum.

Í tilkynningu segir Björn Bragi að mikill fjöldi fólks sæki húsið á hverjum degi, en World Class rekur líkamsræktarstöð í húsinu. Staðsetning Grósku í Vatnsmýri sé spennandi að því leyti að tugþúsundir sæki nám og vinnu í næsta nágrenni. Jafnframt hafi íbúðabyggð í grendinni farið ört stækkandi.

Björn Bragi Arnarsson, framkvæmdastjóri BORG29:

„Við höfum fyllt sjö af átta plássum með virkilega spennandi og flottum aðilum, en eigum eftir að manna síðasta plássið. Viðburðasalurinn mun rúma um 200 gesti og er hann hugsaður fyrir tónleika, uppistand, veislur og hvers kyns viðburði. Það er mikil þörf fyrir góðan sal af þessari stærðargráðu miðsvæðis í Reykjavík. Vonir standa til að veislusalurinn muni opna í júní. Við erum virkilega spenntir fyrir því að opna VERU og starfa í þessu skemmtilega umhverfi."

Hafsteinn Júlíusson, hönnuður:

„Gróska er magnað hús og það er skemmtileg áskorun að skapa umhverfi og upplifun sem fellur vel að stíl og stemningu hússins. Við ákváðum að leitast við að skapa eitt samræmt útlit í innréttingum frekar en að hver og einn staður skeri sig úr. Upplifunin á að vera svolítið eins og þú sért að koma inn á einn veitingastað, sem hefur heildrænt og fágað yfirbragð, en búi samt sem áður yfir afslöppuðu andrúmslofti með fjölbreytileika í mat og drykk. Við lítum svo á að VERA í Grósku verði ákveðið kennileiti í borginni um ókomna tíð og þar muni fólk eiga góðar samverustundir og skapa minningar."