Í ágúst 2024 hélt FT Alphaville því fram að stofnun kauphallarsjóðs (ETF) sem fylgdi einungis hlutabréfaverði MicroStrategy með margfaldri skuldsetningu væri hámark heimskunnar.
Pistlahöfundur Alphaville viðurkennir þó í morgun að það hafi reynst rangt þar sem furðulegasti kauphallarsjóðurinn til þessa hefur nú litið dagsins ljós.
Það er ekki langt síðan að Paul Atkins, nýskipaður formaður verðbréfaeftirlits Bandaríkjanna (SEC), sagði opinberlega að eftirlitið muni undir hans stjórn „fagna og styðja“ við nýsköpun.
Samkvæmt FT voru ummælin dulbúin skilaboð til rafmyntaheimsins sem virðist hafa heyrt hátt og skýrt í nýja formanninum.
„En hver er afleiðingin? Jú, fjárfestingarfyrirbæri eins og þetta“ skrifar pistlahöfundur og birtir mynd af skráningarumsókn frá fjárfestingarfyrirtækinu Canary Capital.

Um er að ræða fyrsta kauphallarsjóðinn sem mun halda á óskiptanlegum táknum (non-fungible tokens, eða NFT)
Samkvæmt útboðslýsingunni hyggst sjóðurinn fjárfesta 80–95% af eignum sínum í rafmyntina PENGU sem er tengd hinu umtalaða NFT- verkefni Pudgy Penguins.
Sjóðurinn mun síðan fjárfesta fyrir 5–15% í óskiptanlegum táknum ásamt því að kaupa örlítið af rafmyntunum Ethereum og Solana.
Það eitt og sér að Ethereum er „fullorðinsfjárfestingareignin“ í þessum sjóði sem áformar að kaupa teiknaðar mörgæsir segir sitt að sögn pistlahöfundar.
„Með hverjum deginum fjarlægjumst við ljóma Guðs,“ skrifar pistlahöfundur um þennan nýstárlega fjárfestingakost
Allir kauphallarsjóðir hafa til þessa byggst á skiptanlegum eignum eins og hlutabréfum, skuldabréfum eða jafnvel rafmyntum.
Hins vegar eru þessar NFT-mörgæsir hver með sín sérkenni og verðmat þeirra byggist að stórum hluta á stemmingunni á samfélagsmiðlum.

Það er því rétt að spyrja: Hvernig fer fram innlausn á hlutdeild í mörgæs með sólgleraugu og hjólabretti?
Það mun einnig reynast mjög erfitt að reikna út raunverulegt virði sjóðsins dag frá degi en verðmyndun á mörgæsunum er gríðarlega sveiflukennd.
Þegar þær voru kynntar til leiks árið 2021 kostaði hver mörgæs um 0,03 ether en í febrúar í fyrra var lægsta viðskiptaverð þeirra 21,68 ether sem samsvarar um 70.000% hækkun á þremur árum. Nú er verðið í 9,4 ether sem samsvarar í dag um 23 þúsund bandaríkjadölum.
Tugþúsund prósenta verðbil
Þrátt fyrir þetta hefur Pudgy Penguins notið vinsælda. Þegar þau voru gefin út árið 2021 kostaði hver NFT 0,03 ether.
Í febrúar 2024 fór lægsta viðskiptaverð þeirra í 21,68 ether – yfir 70.000% hækkun. Nú er það komið niður í 9,4 ether, eða um 23.000 dali.
Þrátt fyrir að Atkins hafi ákveðið að fagna nýsköpun telur FT Alphaville að hér sé um aðeins of frumlega nálgun að ræða enda gefur nafnið kauphallarsjóður til kynna að um traustan eignaflokk sé að ræða. Það getur því miður ekki átt við um teiknaðar, stafrænar mörgæsir.
Pistlahöfundur telur hins vegar jafn miklar líkur á að mörgæsir nái flugi og að SEC muni samþykkja umsókn sjóðsins.
Engu að síður hefur fjármálaheimurinn svarað því hversu langt er hægt að ganga í tilraunarstarfsemi og svarið er „Langt, mjög langt.“