Heildartekjur einstaklinga á Íslandi voru rúmar 9,2 milljónir króna að meðaltali árið 2023, eða um 770 þúsund krónur á mánuði. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en þar segir að tekjur hafi verið um 10% hærri miðað við árið á undan.

Sé horft til verðlagsleiðréttingar er raunhækkunin um 1,3%.

„Miðgildi heildartekna var um 7,6 milljónir króna á ári, sem samsvarar því að helmingur einstaklinga var með heildartekjur yfir 636 þúsund krónum á mánuði. Hækkun miðgildis heildartekna var 11,3%, en sé horft til verðlagsleiðréttingar var hækkunin 2,4%,“ segir í greiningu.

Þá segir einnig að meðaltal atvinnutekna hafi verið um 6,4 milljónir, meðaltal fjármagnstekna rétt tæpar 1 milljón króna og meðaltal annarra tekna um 1,9 milljónir.

Heildartekjur voru lægstar í aldurshópnum 16 til 19 ára eða um 180 þúsund krónur á mánuði. Hér er þó um að ræða einstaklinga sem eru margir hverjir í námi. Tekjur voru hæstar fyrir aldurshópinn 50 til 54 ára eða að jafnaði 1.019 þúsund krónur á mánuði. Þeir sem voru 67 og eldri þénuðu um 715 þúsund krónur.

„Í flestum aldurshópum eru atvinnutekjur stærsti hluti heildartekna, þó vega aðrar tekjur mest í eldri aldurshópunum, til að mynda hjá 67 ára og eldri. Til atvinnutekna teljast allar launatekjur og aðrar starfstengdar greiðslur en til annarra tekna teljast meðal annars atvinnuleysisbætur, félagsleg aðstoð og lífeyris- og bótagreiðslur.“