At­vinnu­leysi á Ís­landi mældist 3,7 pró­sent í maí 2025 og lækkaði úr 3,9 pró­sentum frá apríl, sam­kvæmt mánaðar­skýrslu Vinnumála­stofnunar.

Á sama tíma mældist at­vinnu­leysið 3,4 pró­sent í maí í fyrra.

Er­lendir ríkis­borgarar voru 56 pró­sent þeirra sem voru skráðir at­vinnu­lausir í lok mánaðarins.

Alls voru 7.885 ein­staklingar skráðir at­vinnu­lausir í lok maí, þar af 4.423 með er­lent ríkis­fang. Er­lendir ríkis­borgarar voru 56 pró­sent þeirra sem voru skráðir at­vinnu­lausir í lok mánaðarins.

Flestir þeirra komu frá Póllandi, eða 1.799 ein­staklingar, sem jafn­gildir um 41 pró­senti allra er­lendra at­vinnu­leit­enda. Einnig voru fjöl­mennir hópar frá Litáen, Rú­meníu og Úkraínu.

Langtíma­at­vinnu­leysi vex

Að meðaltali voru 7.697 at­vinnu­lausir í maí, sem er fækkun um 405 frá apríl.

Bæði körlum og konum fækkaði í at­vinnu­leit og at­vinnu­leysi minnkaði í öllum lands­hlutum. Mest var at­vinnu­leysi á Suður­nesjum, 6,1 pró­sent, en minnst á Norður­landi vestra, 1,2 pró­sent.

Alls höfðu 1.506 at­vinnu­leit­endur verið án at­vinnu í meira en 12 mánuði í lok maí.

Í maí 2024 var fjöldi þeirra hins vegar 1.255 og nemur fjölgunin 251 á milli ára. Þeir sem höfðu verið at­vinnu­lausir í 6-12 mánuði voru hins vegar 1.996 í maí síðastliðnum en voru 1.929 í maí 2024.

At­vinnu­lausum fækkaði í öllum at­vinnu­greinum í maí nema í fjár­mála- og vá­trygginga­starf­semi þar sem fjölgaði um tvo.

Mest var fækkunin í ferðaþjónustu þar sem fækkaði um 91, í byggingariðnaði þar sem fækkaði um 64 en einnig í gistiþjónustu um 61.

At­vinnu­lausum fækkaði í öllum at­vinnu­greinum í maí nema í fjár­mála- og vá­trygginga­starf­semi þar sem fjölgaði um tvo.

Mest var fækkunin í ferðaþjónustu þar sem fækkaði um 91, í byggingariðnaði þar sem fækkaði um 64 en einnig í gistiþjónustu um 61.

At­vinnu­leit­endur á Ís­landi hafa þann mögu­leika að geta farið í at­vinnu­leit innan annars EES-ríkis í allt að þrjá mánuði og haldið at­vinnu­leysis­bótum sínum, fái þeir út­gefið svo­kallað U2-vott­orð sem Vinnumála­stofnun hefur um­sýslu með.

Í maí voru gefin út 131 vott­orð til ein­stak­linga sem fóru í at­vinnu­leit til Evrópu. Flestir fóru í at­vinnu­leit til Póllands eða 85 ein­staklingar, 13 fóru til Litáen, átta fóru til Spánar og fimm til Lett­lands. Þá voru gefin út 20 vott­orð til viðbótar til níu annarra ríkja.