Friðrik Sigurbjörnsson, oddviti D-listans í Hveragerði, lítur svo á að bæjarráð hafi óvart samþykkt tillögu sína um að lækka álagningarhlutfall fasteignagjalda til móts við hækkun fasteignamats á fundi í morgun.

Meirihlutinn sat hjá við afgreiðslu málsins en Friðrik, fulltrúi D-listans í minnihluta, greiddi atkvæði með tillögunni.

„Í fundargerðinni var ritað að tillaga mín hafi verið felld og ég kveikti ekki á því að hún hafði í raun verið samþykkt fyrr en mér var bent á það eftir fund,“ segir Friðrik í samtali við Viðskiptablaðið.

„Samkvæmt 17. gr. sveitarstjórnarlaga og sama ákvæðis í samþykkt um stjórn og fundarsköp Hveragerðisbæjar er hjáseta talin sem þátttaka í atkvæðagreiðslu og þannig hafi tillagan í raun verið samþykkt á bæjarráðsfundinum í morgun með hjásetu meirihlutans og með einu atkvæði mínu. Því er textinn í afgreiðslu bæjarráðs um að tillagan hafi verið felld ekki rétt.“

Í umræddri 17. gr. sveitarstjórnarlaga segir að „á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.“

Friðrik lítur því svo á að bæjarstjórn verði að framfylgja þessari samþykkt bæjarráðs fyrir árið 2026 þegar ákvörðun um álagningarhlutfall fasteignagjalda verður tekin fyrir. Tillaga hans gerir einnig ráð fyrir fækkun gjalddaga úr 11 í 10.

Fasteignmat hækkar um meira en 10-12%

Í greinargerð með tillögu Friðriks segir að samkvæmt fasteignamati ársins 2026 sem HMS birti í lok maí er hækkun á fasteignamati íbúða í Hveragerði um 10,1% á milli ára og fyrir atvinnueignir er hækkunin um 11,7%.

„Þetta er því enn eitt árið þar sem að fasteignamat í Hveragerði hækkar mikið á milli ára og mikilvægt er að koma til móts við íbúa og fyrirtæki í bænum.“

Meirihluti bæjarráðs sagðist fagna tillögu D-listans sem mikilvægu innleggi inn í fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2026. Eins þakkaði meirihlutinn Félagi atvinnurekenda, sem sendi inn erindi um álagningu fasteignagjalda, og vísaði hann málinu til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026, að því er kemur fram í fundargerð bæjarráðs.