Hlutabréfverð bandarískra tæknirisans Nvidia hefur fallið um 13% í viðskiptum dagsins, einkum vegna áhyggja af áhrifum nýs risamállíkans kínverska sprotafyrirtækisins DeepSeek á gervigreindariðnaðinn.
Markaðsvirði Nvidia hefur lækkað um ríflega 465 milljarða dala, eða hátt í 65 þúsund milljarða króna, það sem af er degi. Útlit er fyrir að þetta verði mesta lækkun á markaðsvirði eins félags í sögu bandaríska hlutabréfamarkaðarins, að því er segir í umfjöllun Bloomberg.
Nvidia situr í átta af tíu sætum á lista viðskiptamiðilsins yfir mestu lækkun á markaðsvirði á einum degi. Félagið á einnig fyrra met frá því að markaðsvirði þess lækkaði um 279 milljarða dala í byrjun september síðastliðnum.
Líkt og Viðskiptablaðið fjallaði um í morgun hafa hlutabréf stórra tæknifyrirtækja lækkað talsvert í dag. S&P 500 vísitalan hefur lækkað um 1,6% það sem af er degi.
Lækkanir eru raktar til nýs risamállíkans DeepSeek sem þykir álíka öflugt og líkön bandarísku samkeppnisaðilanna OpenAI og Meta. Kínverska fyrirtækið segist hafa náð framförum í að þjálfa líkön með mun færri Nvidia örgjörvum en bandarísku samkeppnisaðilar þess.
Auknar áhyggjur eru því uppi um að bandarísk stórfyrirtæki hafi fjárfest of mikið í gervigreindartækni.